Ég fór að túristast um helgina.
Skellti mér uppá Fjellheisen sem er fjall hér við bæinn en upp
það fjall er hægt að fara í kláf... það var ekki séns að ég færi
að labba upp þetta fjall. Ekki komst ég langt síðast þegar ég
ákvað að labba upp norskt fjall... ég held að við(silje, roy
petter og stelpurnar) hefðum ekki getað valið betri dag til að
fara, varla ský á himni, temmilega kalt(ég er að verða algjör
tromsöbúi, vill bara hafa það kalt) en amatörinn ég í
túrismafræðum gleymdi selfölgelig myndavélinni á Bakkejord. Þá
var nú gott að vera með símann(var þetta ekki í einhverri
auglýsingu?), þannig að vopnaður síma, nýjum sólgleraugum og
nokkuð vel skeggjaður(drullist til að vinna) tók ég þarna allveg
klassamyndir og hérna eru þær:

þangað upp var ferðinni
heitið

og þarna er hátæknibúnaðurinn sem
notast var við til að ferðast upp og niður...

og þarna sjáum við tromsö í öllu sínu
veldi og ef þið pírið augun sjáið þið mann stökkva af
brúnni
er ekki frá því að þetta minni aðeins
á eyjafjörðinn góða
Skellti mér síðan í bíó um kvöldið.
Skellti mér á V for Vendetta. Ákvað að fara með mjög litlar vonir
því ekki fannst mér það líta vel út í trailernum að sjá einhvern
með mjög svo kjánalega grímu lemjandi mann og annan. En annað kom á
daginn og ég var bara nokkuð ánægður með hana. Ég ætla ekkert að
fara út í söguþráðinn en þarna maður hluti sem minnti á Hitler,
Osama bin Laden, Georg Runna, Norður Kóreu og það mætti allveg
halda áfram en þið verðið bara að skella ykkur á hana.
Úr hvaða mynd er þetta og hvaða
leikarar eiga í hlut?: 1: I will call you
2: When?
1:When your phone rings.
Jakob